11. september
Jæja þá er þing hafið að nýju þó stutt verði að þessu sinni. Sex þingfundadagar framundan og lítið sem frá ríkisstjórninni kemur þar á dagskrá. Vinnan í fjárlaganefnd hefur falist í því að fara yfir skýrslu ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga og svo kynningu á frumvarpi um opinber fjármál sem verið hefur í smíðum í 2 ár. Miklar breytingar framundan þar og ljóst að innleiðing tekur tölvuerðan tíma.
En ég steig í pontu í gær undir umræðu um Reykjavíkurflugvöll. Hér er ræðan mín.
Virðulegi forseti. Það er í senn mikilvægt og merkilegt hlutverk sveitarfélags að vera höfuðborg. Því fylgja mikil forréttindi og fátt er eins mikil lyftistöng mannlífs og þróunar og að hafa slíkt hlutverk með höndum. Í höfuðborginni okkar er stærsti hluti opinberrar stjórnsýslu, mennta- og menningarstofnanir, þjóðarspítalinn sem og margvísleg önnur sérhæfð þjónusta sem landsmenn þurfa á að halda og vilja sækja.
Umræða og átök um Reykjavíkurflugvöll undanfarna áratugi hafa sýnt að nauðsynlegt er að treysta undirstöður Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands. Til að höfuðborg standi undir nafni þarf hún að axla þá ábyrgð sem því fylgir. Höfuðborg þarf að vera síkvik og lifandi, íbúar hennar og þeir sem kosnir hafa verið til ábyrgðarverka verða í starfsháttum og skipulagi að taka tillit til þjónustuhlutverks borgarinnar fyrir alla landsmenn. Að sjálfsögðu á höfuðborgin sín réttindi, þar á meðal þau að samráð sé haft við stjórnendur hennar um þær ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og þings sem snerta mikilvæga hagsmuni borgarbúa, svo sem atvinnutækifæri, skipulag og yfirbragð.
Afar mikilvægt er að höfuðborg sé í nánum tengslum við alla staði landsins og þangað verða allir íbúar að eiga góðan og greiðan aðgang. Þess vegna geta ráðamenn höfuðborgar ekki tekið einhliða og þröngt ígrundaðar ákvarðanir. Af þessu leiðir að vegasamgöngur, flugsamgöngur og samgöngur á sjó þurfa að vera góðar. Fyrir landsbyggðarfólk snýst flugvallarmálið ekki um það hvort það taki jafn langan tíma að komast úr Vesturbænum í Reykjavík á Kjalarnesið eða að aka úr Grafarholtinu til að komast í innanlandsflug eða umferðaröngþveitið í Reykjavík eða þörfina fyrir nýrri miðborg. Byggðir á Vestfjörðum, Norðurlandi og annars staðar verða áfram og um ókomna tíð verulega háðar góðum og öruggum flugsamgöngum til og frá höfuðborginni. Flugvöllur í Vatnsmýrinni í Reykjavík er spurning um það hvort fólk á landsbyggðinni eigi áfram kost á að njóta þeirrar þjónustu sem það kemst ekki hjá að sækja til höfuðborgarinnar með skjótum og öruggum hætti að því marki sem flugið býður upp á. Höfuðborg getur ekki vísað á dyr þessum skyldum sínum, höfuðborg án vega, flugvalla eða (Forseti hringir.) hafnar rís ekki undir nafni. Ég treysti því að Alþingi og borgarstjórn sjái til þess að við öll, íbúar þessa lands, getum áfram verið stolt af höfuðborginni okkar sem axlar vonandi alla þessa miklu ábyrgð með þarfir allra landsmanna að leiðarljósi.
13. júní
Fyrstu dagarnir búnir að vera bæði strembnir og áhugaverðir á þingi. Ég hef tekið þátt í alls konar umræðum og er eiginlega alveg að finna mig. En ég verð að segja að ég á "hauka í horni" sem aðstoða mig þessi fyrstu alvöru spor. Mikil stemming í þingflokknum en ég sakna nú bæði Álfheiðar og Bjössa.
Í dag ræddum við um erfiðar aðstæður bænda í mínu kjördæmi og víðar. Svo var rætt um STÓRA kosingaloforð Framsóknarflokksins en formaðurinn gat bara stoppað stutt við í umræðunum og þrátt fyrir yfirlýsingar um að hann myndi svara spurningum í lokaræðu sinni þá sá hann ekki ástæðu til þess að heiðra okkur þingmenn með nærveru sinni og málfutningi við lok fyrstu umræðu LOFORÐAMÁLSINS. Hann var nú upptekinn enda fyrsta mál formannsins sem forsætisráðherra og allt klárt - eða þannig. Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu þessu að sjálfsögðu enda fáheyrt að ráðherra svari ekki spurningum þingmanna í sínu FYRSTA OG STÆRSTA máli sem forsætisráðherra.
Hér má heyra umræðurnar um málið.
En svo er nú HÆGRI STJÓRNIN alveg að uppfylla væntingar sinna flokksmanna geri ég ráð fyrir. Í gær t.d. þá sögðu þeir félgar að þeir myndu vilja endurskoða fæðingarolofssjóð, lækka veiðigjaldið og endurskoða tannlækningar barna. Þetta hlýtur allt að vera samkvæmt bókinni og þeir sem kusu HÆGRI flokkana eru líklega sáttir.
Að gefa tíma til úrlausna er eitt en þegar svo grimm HÆGRI stefna er ráðandi er ekki hægt annað en að efast um að fjölskyldur landsins séu forgangsmál ríkistjórnarflokkanna.
10. júní
Flaug suður í morgun og hitti starfsfólk fjármálaskrifstofu þingsins. Síðan var þingflokksfundur og þar á eftir undirbúningur undir umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra. Fyrir áhugasama þá er ræðan mín hér.
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20130610T215204&horfa=1
9. júní
Helgin var skemmtileg en strembin enda nóg að gera á Kaffi Klöru. Skoðið
https://www.facebook.com/KaffiKlaraCafeClara?fref=ts Heimasíðan birtist svo von bráðar.
7. júní
Þá er þingsetningin yfirstaðin og öll herlegheitin sem henni fylgja. Ég er svona nokkuð að átta mig á nöfnum nýju þingmannanna. Fékk úthlutað fjárlaganefnd og geri mitt besta til að standa undir þeirri miklu vinnu sem þar fer fram. En ég flaug heim í dag, erindaði aðeins á Akureyri og fór svo strax að stússa í kringum Kaffi Klöru.
Hef eitt kvöldinu í að leita mér að búsetu í borginni og vona að það taki nú ekki mjög langan tíma. Ef einhver lumar á góðum hugmyndum varðandi íbúðir eru þær vel þegnar.
5. júní
Undanfarnar vikur hafa einkennst af miklum hamagangi við að koma Kaffi Klöru í gagnið ásamt því að þeytast á milli Ólafsfjarðar og Reykjavíkur sem þingmaður og sinna þeim störfum. Opnunin gekk afar vel og okkur vel tekið nú er bara að vona að áhuginn haldi.
En ég fór úr sólinni og hitanum fyrir norðan á þriðjudagsmorgun í suddann í borginni (það er nú að birta til hér) til að koma mér í gang með þingflokknum. Svo er eins og gengur ýmislegt sem þarf að græja þegar maður hefur nýja vinnu á nýjum stað og allt tekur þetta tíma en allir starfsmenn þingsins svo brosmildir og ljúfir og vilja allt fyrir mann gera.
16. maí
Eftir vinnu í MTR í dag fór ég í Strandgötuna ásamt Klöru Mist og Jóa þar sem við tókum til hendinni. Við Helgi fórum svo aftur eftir kvöldmat og "föndruðum" en við stefnum að því að opna föstudaginn 31. maí en handtökin eru ansi mörg eftir til að svo geti orðið en við erum alltaf bjartsýn. Helgin verður vel nýtt og nú er búnaður af ýmsu tagi að streyma inn til okkar þannig að verkefnin skortir ekki.
15. maí
Í dag sat ég minn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarfulltrúi Fjallabyggðar. Þetta hafa verið skemmtileg og gefandi 7 ár en um leið krefjandi. Allt það fólk sem með mér var í bæjarstjórninni hafði ég ekki haft kynni af áður a.m.k. ekki frá því ég var unglingur utan Villu sem ég starfaði með í grunnskólanum á þeim tíma. En starfið á þessum tíma var um margt ólíkt þar sem ár árunum 2006-2010 voru samgöngur yfir Lágheiði eða "lengri leiðina" eins og við sögðum gjarnan. Við fengum að renna í gegnum Héðinsfjarðargöng svona á síðustu metrunum og upplifðum þá strax hversu mikil breyting þau yrðu fyrir bæði íbúa og aðra.
En eins og gengur eru ekki allir sáttir á hverjum tíma við ákvarðanir sem bæjarfulltrúar taka enda málin öll okkur nákomin á einn eða annan hátt. Nú hefur verið unnin stjórnsýsluúttekt sem mér þótti um margt áhugaverð og afar lærdómsríkt að fara svo djúpt ofaní allan rekstur sveitarfélagsins. Nú er framundan úrvinnsla úr þeim tillögum sem þar eru lagðar fram og vona ég að félagar mínir í bæjarstjórn nái að vinna vel úr þeim og hafi í heiðri jafnræði og þjónustu við íbúa og gesti en horfi ekki einungis til hagræðis.
Sjálf er ég að ljúka vinnu minni í Menntaskólanum á Tröllaskaga, og kveð góða samstarfsmenn og nemendur, í bili en hef nú sagt að ég muni kíkja reglulega við enda frábær vinnustaður.
11. maí
Eftir góðan morgun-kaffisopa með mínum kæra hófst ég handa við að þrífa og gera huggulegt enda matarboð í kvöld. Uppúr hádegi fór ég í Menntaskólann þar sem fram fór vorsýning nemenda sem var algerlega stórkostleg. Þar mátti sjá alls konar frumkvöðlaverkefni sem unnin voru í Tröllaskagaáfanganum auk myndlistar, sönglistar, ljósmynda, söngs, stuttmynda og fleira.
Þá var komið að því að klára að undirbúa matarboð kvöldsins sem samanstóð af grilluðu lambakjöti og meðlæti auk kjúklingaréttar með austurlensku ívafi og tveggja deserta.
Ekki laust við að heldur mikið hafi verið í kviðnum þegar lagst var á koddann.
10. maí
Eftir vinnu fram til kl. 14 var haldið til Akureyrar þar sem erinda þurfti ýmislegt vegna framkvæmdanna og þar sem konan er skipulögð var farið víða og tíminn vel nýttur. Kvöldið í rólegheitum með fjölskyldunni og Jódís Jana aðstoðuð við að útbúa skúffuköku og krem sem hún ætlar með á stórsýninguna í grunnskólanum á morgun. Stúlkunni tókst að sjálfsögðu vel upp.
9. maí
Dagurinn tekinn snemma og hann allur nýttur til vinnu í væntanlegu kaffihúsi. Það var því afar notalegt að vera boðin í kjötsúpu hjá tengdó að kveldi dags og geta svo farið heim og slakað í pottinum.
8. maí
MTR, fundur vegna menningamála og svo gengið frá Tröllakoti fyrir næstu íbúa. Hringdi í kaffibarþjón sem ætlar að aðstoða okkur og kenna almennileg handtök við kaffibollann áður en við opnum kaffihúsið. Margt sem þarf að finna út og græja ef áætlanir eiga að standast en við erum bjartsýn.
7. maí
Verkefnin að vanda fjölbreytileg og nú er verið að setja upp vorsýninguna í MTR sem verður afar fjölbreytt og áhugaverð. Hvet alla sem mögulega geta að kíkja við á laugardaginn - sjá á mtr.is
Bæjarfulltrúar voru boðaðir á fund síðdegis, sem stóð frameftir kvöldi, til að fara yfir stjórnsýsluúttekt og ljóst að mikill lestur er framundan enda viðamikil skýrsla. Afar gott að fara svona vel ofaní allan rekstur sveitarfélagsins og heilmikill lærdómur.
6. maí
Mætt í MTR í morgun og ekki laust við að komin sé vorfiðringur í nemendur. Ýmislegt sem ég þurfti að vinna upp og ræða málin til að tengjast svolítið aftur. ;-)
Fundarstúss síðdegis og framundir miðnætti.
5. maí
Slagveður og leiðindi í dag og því kjörinn dagur til inniveru og verka. Meðfram þeim horft á fótbolta, bakaðar vöfflur og morgundagurinn fyrir kennsluna undirbúinn.
Slökun og sjónvarpsgláp í kvöld.
4. maí
Í dag var komið að því að konan tæki til hendinni í Strandgötu 2 en þar miðar ágætlega en mörg handtök þarf nú enn áður en hægt verður að opna kaffihúsið.
Fengum svo góða gesti í kvöldkaffi.
3. maí
Dreif mig í flug frá Egilsstöðum til Reykjavíkur þar sem stjórnarfundur hjá VG var um miðjan dag. Þar var farið yfir niðurstöður kosninganna og baráttuna í heild sinni og var það almenn skoðun að við hefðum gert vel.
Flaug norður undir kvöldmat og þar tók við hittingur samskonar og fyrir austan í gær þar sem félagar áttu góða kvöldstund saman.
2. maí
Þá var komið að því að kenna aftur eftir leyfið í apríl. Var með nemendur starfsbrautar í matreiðslu sem er alltaf jafn skemmtilegt. Eftir hádegi keyrði Klara Mist mig til Akureyrar þar sem ég fór með Strætó austur á Egilsstaði en þar var ætlunin að hitta góða félaga.
Við hittumst í heimahúsi og borðuðum dýrindis hreindýrapottrétt og áttum góða kvöldstund með félögum sem höfðu staðið í eldlínunni í kosningabaráttunni fyrir austan.
1. maí
Tók daginn rólega og undirbjó matarboð kvöldsins þar sem ég bauð uppá austurlenskan mat. Hringdumst aðeins á félagar til að skipuleggja morgundaginn.
Naut svo frábærra tónleika í Menningarhúsinu Tjarnarborg en þar bauð Tónskóli Fjallabyggðar uppá flotta tónleika með kvennakór og kennarabandi skólans.
Kvöldið í rólegheitum eftir að hafa borðað á sig gat.
30. apríl
Kíkti aðeins í Menntaskólann og fékk mér kaffi með samstarfsfólkinu. Dagurinn annars nýttur í að fara yfir og ganga frá eftir kosningabaráttuna.
29. apríl - þingflokksfundur
Formaðurinn boðaði til fyrsta þingflokksfundarins eftir kosningar svo konan brunaði til Akureyrar og í flug. Á fundinum fórum við yfir niðurstöður kosninga og framhaldið. Hópurinn þéttur og tilbúinn til áframhaldandi góðra verka.
Borðaði með Ásgeir bróður í hádeginu - alltof langt síðan ég hef séð hann en nú verður væntanlega breyting þar á þar sem dvöl mín verður nú meiri í borginni en áður.
Flaug heim síðdegis og hitti bæjarmálafélag Akureyrar og kosningastjórann svona áður en haldið var út í Ólafsfjörð.
28. apríl - the morning after
Var nokkuð sátt við gengi okkar hér í Norðausturkjördæmi en ekki eins kát með að við fengjum ekki þann þingmannafjölda sem atkvæðin gefa til kynna en svona er þetta nú.
Dagurinn var annars rólegur eftir næturvöku og ákveðið spennufall hjá fjölskyldunni eftir mikinn þeyting á húsfrúnni undanfarnar vikur.
27. apríl - kjördagur
Eftir góða sturtu og kaffibolla fór ég að kjósa og þaðan hélt ég til Dalvíkur í heimsókn á kosningaskrifstofu Vinstri grænna en þar höfðum við Steingrímur Joð ákveðið að hefja yfirferð dagsins. Eftir gott spjall á Dalvík héldum við á Akureyri en þar var samankominn fjöldi fólks í kosningakaffi. Næsta stopp var á Húsavík en ég ákvað að taka mér bílaleigubíl þar sem við Steingrímur skiptum liði og hann hélt að loknu stoppi á Húsavík til Gunnarsstaða til að taka fyrstu tölur en ég ákvað að vera á Akureyri. Við hittumst svo ásamt fleiri frambjóðendum og stuðningsfólki síðar um nóttina og ekki laust við að ákveðin spenningur væri í mannskapnum þar sem tölur úr kjördæminu voru skaplegar.
Um miðja nótt ákváðum við hjónin að fara heim en ég sat við sjónvarpið til hálf sex og ákvað þá að halla mér aðeins ekki enn sannfærð um eigin afdrif í pólitíkinni.
Síminn byrjaði að gefa frá sér hljóð um hálf átta og þá skreið ég framúr og tók síðustu tölur og konan orðin þingkona.