Ég heiti Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (f. 27. febrúar 1965 í Reykjavík) er náms- og starfsráðgjafi og grunnskólakennari. Ég ólst upp á Siglufirði og bjó þar til 15 ára aldurs en þá flutti ég til Ólafsfjarðar. Faðir: Gunnar Hilmar Ásgeirsson (f.1942-2010), móðir: Klara Björnsdóttir (1945-2010). Ég á tvö systkini, Hrólfdísi Helgu (f. 1972) og Ásgeir (f. 1975). Maki minn er Helgi Jóhannsson, útibússtjóri, og eru börnin þrjú, Tímon Davíð (1982), Klara Mist (1987) og Jódís Jana (1999). Tímon Davíð á einn son, Tristan Amor sem fæddur er 2. júní 2011.Ég lauk grunnskólakennaranámi úr Kennarháskóla Íslands og síðar náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Ég starfaði við Grunnskóla Fjallabyggðar í all mörg ár en starfa nú í Menntaskólanum á Tröllaskaga sem náms- og starfsráðgjafi og hef einnig umsjón með starfsbraut fyrir fatlaða nemendur.
Ég hef langa reynslu af sveitarstjórnarmálum og sit í bæjarstjórn Fjallabyggðar. Ég hef starfað í ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins og fyrir hönd þess bæði fyrir og eftir sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og er nú formaður menninganefndar sveitarfélagsins.
Ég sat fyrst sem varaþingmaður á Alþingi 2004, fyrir Vinstri græn í Norðausturkjördæmi, og hef gert með reglulegu millibili síðan.
Við hjónin keyptum gamla pósthúsið í Ólafsfirði og rekum Gistihúsið Jóa með sex herbergjum og á komandi vori 2013 verður tekið í notkun bókakaffi á neðri hæð hússins. Að auki eigum við hús rétt utan við bæinn sem heitir Tröllakot sem við leigjum út.